Friday, July 4, 2014

Lazy Lasange!

Lazy Lasange er hugmynd sem ég fékk út frá klassísku mexicano lasange og vinsæla snakkréttnum sem allir vita hver er (rjómaostur, salsasósa, ostur og doritos).
Lazy Lasange er millileiðin, fyrir okkur sem erum lasy!

Það er vinna að búa til almennilegt lasange, láta plöturnar liggja í bleyti og hafa allt eftir ákveðnari röð!

Ég nenni því mjög sjaldan og hef þessvegna búið mér til ''Lasy Lasange'' uppskrift þar sem innihaldinu er skellt í fatið og svo bara hrært, enging röð, engar plötur, ekkert vesen.

Öllu er skellt í, í hvaða röð sem er, svo bara hrært.

Það sem þarf
  • Sveppabox
  • 2 Paprikur
  • Rauðlaukur (nota hann ekki hér)
  • Quorn soja kjöt (eða hvernig kjöt sem þú borðar, td. kjúkling)
  • Rifinn ostur 1-1.5 pakki
  • Grísk jógúrt
  • Hakkaðir tómatar
  • Chunky salsa (350 gr)
  • Taco spice mix pakki
  • Doritos


 Byrjum á því að skera og steikja grænmeti (papriku, sveppi, rauðlauk)

Skellum svo steikta grænmetinu í eldfast mót ásamt öllu hinu (sjá mynd efst)
Grísk jógúrt er mikið hollari kostur en rjómaostur og virkar líka betur í þessum rétti.
Byrja á því að setja hálfan ostapokann en bæti seinna við til þess að þykkja eftir þörf.

Blanda!

Hér er allt hrært.
Soja kjötið setti ég í örbylgju í 5 mín, afþví að það var frosið.

Ostur og papriku krydd ofan á!

Tilbúið þegar osturinn er vel bráðinn.

Borið fram með doritos!

Og já þessu uppskrift er mjög stór, en það er alltílagi afþví að daginn eftir er þetta betra.



Knús!