Nú er sumarið komið! Allaega á leiðinni.
Á sumrin vil ég hafa förðunina léttari og ferskari. Mikið af kremvörum og frekar smá shimmer heldur en matt.
Og svo auðvitað nóg af
appelsínugulu, coral og bronze!
Mála mig minna um augu og augabrúnir en legg meiri áherslu á varir og kinnar.
Og highlight!
Þetta eru svona mínar helstu uppáhalds
musthave sumarvörur.
L'Oréal Magic Lumi primer! Ég elska þennan, sá besti sem ég hef notað (fyrir þurra/venjulega húð). Hann er ekki mikið að fylla uppí holur eins og silicon primerar en hann sléttir og mýkir yfirborðir svo að farðinn fer jafn og fallegur á. Svo er hann líka svona ''luminous'' og gefur heilbrigðan ljóma.
Garnier BB oily! Þetta BB krem er alveg yndislegt.
Hef litla trú á BB kremum og hef prufað fjölmörg og sum þeirra mjög dýr.
Þetta hinsvegar stendur uppúr ásamt Maxfactor sem mér finnst aðeins of þykkt fyrir sumartímann.
Þetta er BB kremið frá Garnier fyrir feita húð.
Ég er sjálf með þurra og hef prufað BB kremið þeirra fyrir þurra húð (bad) en finnst þetta virka mjööög vel!
Þekur og gefur náttúrulegt útlit, fæst líka ódýrt í bónus. score.
Rimmel Wake Me Up! Nenni ekki oft að vera með meik á sumrin nema við sérstök tilefni. Þetta hér er algjör snilld fyrir venjulega/þurra húð. Miðlungs þekja sem hægt er að byggja upp. Inniheldur örlítið shimmer sem gefur húðinni frískleika og ljóma. Finnst þetta æði fyrir þurra, þreytta og líka eldri húð. Nota þetta líka á mömmu þegar ég farða hana. Fæst á asos.com
Real Techniques Buffing Brush! Þessi er bara einfaldlega bestur. Notaði fyrst ''expert facebrush'' frá þeim en skipti svo yfir í þennan. Algjört gull og á frábæru verði í næsta apóteki/hagkaup. Nota með BB og meiki.
The Body Shop All in one Face base! Trausta góða púðrið sem er notað allan ársins hring.
Þekur án þess að vera áberandi. Mattar og festir farða. Fullkomið púður.
Real Techniques! Stór, fluffy, mjúkur.
Clarins sólarpúður! Tvískipt, ein ljósari hlið sem gott er að nota til þess að fá svona ''sunkissed look''.
Dekkri liturinn hentar mér vel í skyggingar. Ég nota 03. Helst á endalaust. Matt.
The Body Shop Honey Bronze! Þetta er æðislegt. Matt og auðvelt að dreifa því á jafnt og fallega.
Ég er mest hrifin af nr 3. Hægt að nota sem sólarpúður og líka byggja upp í skyggingu. Frábært verð fyrir góð gæði.
Bourjois Bronzing Primer! Góður krem bronzer, hægt að nota sem primer undir sólarpúður og líka eitt og sér. Gott fyrir þá sem eru með þurra húð og finnst púðrin verða flekkótt.
Ég elska svona krem vörur fyrir mína þurru húð svo þetta er win hjá mér.
Zoeva Stipple Brush! Nota alltaf stipple brush með krem bronzer og krem kinnalitum. Þessi er frá Zoeva og er mjög góður en einnig líkar mér við ELF stipple burstana. Stóra fyrir bronzerinn.
Bourjois Kremkinnalitir! Þetta merki er aldeilis að standa sig vel í kremfarða deildinni. Ég nota kremkinnaliti allan ársins hring. Finnst þeir lang náttúrulegastir og gera mann frísklegri. 01 er uupáhalds.
Þessir eru með cream to powder áferð.
NYX Kremkinnalitir! Þeir eru virkilega fínir, smá klístraðir, en haldast þá líka vel á. Ekki nærrum því jafn klístraðir og MAC en samt nóg. Orange er uppáhalds. Þessi verður mikið notaður í sumar!
ELF Small Stipple Brush! Tilvalinn fyrir alla kremkinnaliti.
Milani Baked Blush Luminoso! Fallegasti kinnalitur í heimi að mínu mati. Fullkominn kóral bleikur með gylltu shimmeri. Kemur einnig í stað fyrir highlighter. Fæst ekki á íslandi, hægt að panta að utan. Ódýr.
Benefit Whatt's Up! Kampavínslitaður krem highlighter sem fæst í flugvélum Icelandair. Ég keypti minn fyrir einu og hálfu ári og hef notað síðan þá, oft í viku, á nóg eftir. Finnst hann algjört æði og ætla mér aldrei að vera án hans. Bestur.
Maybelline Brow Drama! Mótar og heldur augabrúnum á sínum stað. Inniheldur líka trefjar sem gefa augabrúnum þykkara útlit. Einfalt og fljótlegt.
Oh Honey! 105
Sunshine Love! 190
The Body Shop Colour Crush Eyeshadows!
Hágæða augnskuggar á góðu verði. Þessir tveir eru mínir uppáhalds. Sá fyrri ''Oh Honey'' er gullfallegur yfir allt augnlokið og passar við öll look. Einnig er hægt að nota hann í augnkrókinn sem highlight.
Sunshine Love er nýr og fullkominn sumarlitur. Hann er mattur og flottur á allt augnlokið og einnig sem skygging. Hann lætur grænbláu augun mín virka skær blá! Algjör snilld.
Maybelline Gel Eyeliner! Kremkenndur gel eyeliner sem kemur með bursta. Nota þá saman og hef gert í þrjú ár. Hvern einasta dag. Nota stundum Bobbi Brown en finnst þessi betri og burstinn góður líka. Hef heyrt um að þeir séu að/búnir að breyta formúlunni til hins verra. Fingers crossed að það sé orðrómur!
The Body Shop Carbon Liner! Mjúkur, góður eyeliner með svampi aftan á til þess að mýkja línuna. Ég nota hann alla daga á neðrihluta augans fyrir neðan augnhárin (utan augans). Ég nota brúna því að mér finnst hann mildari og svo mýki ég línuna enn frekar með svampinum.
Rimmer Scandaleyes Khol Liner- Nude! Mér finnst nude eyeliner algjört must, stækka ásýnd augnana og passa við allt. Maxfactor og Isadora gera einnig góða nude blýanta. Þessi fæst á asos.com
MAC Shy Girl! Þessi er gorgeous. Vanalega nota ég ''Kinda Sexy'' sem er mattur en á sumrin vil ég hafa smá glans og þessi er því tilvalinn hversdagslitur fyrir mig. Hlýr bleikur með beige-orange blæ og gylltu fínu shimmeri! Besta lýsing sem ég get gefið haha.
MAC Morange! More Orange já takk! Notaði þennan mikið í vor og mun halda því áfram út sumarið. Einstaklega fallegur og velþekjandi appelsínugulur. Satin áferð.
Makeup Store Prairie! Nýji sumarliturinn minn, hef leitað að svona ljósum bleik kóral lit lengi lengi. Þessi er yndislegur og bjartur sumarlitur. Hann er ''sheer'' svo að það er hægt að byggja hann upp að vild. Get ekki lýst því hve ánægð ég er með hann.
Chanel Holiday! Keeping with the orange trend. Passar frábærlega við Morange frá MAC og helst á heillengi.
Ódýrari kostur: Ruby Kisses HD sem fást í apótekum - appelsínugula. Mjög fínt.
ELF Makeup Mist & Set! Gott fyrir sumarið þegar farðinn getur bókstaflega bráðnað af. Þetta er smá klístrað sprey sem festir farðann betur. Mjög vont bragð, hafið lokaðan munn og halda vel frá andlitinu þegar spreyjað er! Virkar!
The Body Shop Honey Bronze Oil!
Falleg, brúnku olía með shimmeri. Næst af í sturtu. Ég nota númer 1, hún er ljósari en líka með meira shimmeri. Númer 2 er dekkri með minna shimmeri. Báðar gullfallegar - bókstaflega!
The Body Shop Body Mist - Pink Grapefruit!
Léttur og ferskur sumarilmur.
Beyoncé Heat Rush! Hún gerir geðveik ilmvötn. Elska líka rauða en þetta er meira sumar. Nota þetta þegar ég vil eitthvað þyngra en body mist. Þetta er fruity sexy ilmvatn sem þú bara verður að finna sjálf/ur.
Maroccanoil! Hárolíur eru algjör nauðsyn fyrir mig. Án þeirra gæti ég ekki verið með sítt hár. Love it!
Lee Stafford Sea Salt spray!. Spreyjað í rakt hár, svo þegar hárið mitt þornar eru komnir liðir.
Algjör snilld og beach waves klikka ekki á sumrin.
Þessar vörur eru mínar uppáhalds af mínum uppáhalds og það var frekar erfitt að takmarka þær.
Vonandi að þetta hafi eitthvað gagnast þér x
Knús!