Minn uppáhalds matur hefur alltaf verið rúllubrauð, frá því ég var lítil og fór að fara í afmæli og byrjaði síðan að suða í mömmu um að búa til þannig í kvöldmatinn.
Margir gera svona við sérstök tilefni en ég hinsvegar hef þetta í kvöldverð af og til og hef gert í mörg ár.
Þetta var eitt af því fyrsta sem ég lærði að elda og hef gert óteljandi í gegum tíðina.
Ef það er eitthvað sem ég kann að elda þá er það rúllubrauð.
Hef í gegnum árin prufað ýmsar útfærslur og ætla að deila með ykkur þeirri bestu hingað til.
Þessi er með mexíkönsku ívafi og án kjöts. Þeir sem geta ekki sleppt því geta bætt við skinku eða kjúklingaskinku.
Mæli með þessu í veisluna eða bara í kvöldmat..
Venjan er að nota sveppaost í rúllubrauð, ég er hinsvegar hætt því. Nýji texmex osturinn er bragðmeiri án þess að vera neitt spicy og bara mjög bragðgóður.
Star of the show!
Þú þarft : Rúllubrauð, texmex smurost, aspasdós, 2/3 sveppaöskju, ost (sneiðar eða rifinn) og paprikukrydd. Majones/AB mjólk og paprika eru optional.
Til þess að bæta mér upp sveppaostmissinn þá steiki ég sveppi á pönnu! Einnig hægt að nota dósasveppi en ekki alveg eins gott. Svo er hægt að steikja papriku með.
Texmex smurostinn bræði ég í potti ásamt aspas. Bræði ostinn ekki mikið, hef hann frekar kekkjóttan.
Ég er mjög picky á aspas. Kaupi annað hvort heila og sker frá endana eða handtýni í burt allt hart ef þeir eru í bitum.Worth it!
Hér eru sveppirnir steiktir og kryddaðir með hvítlaukspipar og smurosturinn bráðinn.
Þessu er síðan smurt á jafn og skilið eftir smá pláss öðru megin.
Rúllað upp, smurt með majonesi/AB mjólk, stráð osti yfir og síðan er paprikukryddið ómissandi.
Þarnæst skellt inní ofn á 180° í 15-20 mín.
Yum!
Það tekur mig ca 15 mín að skella í eitt svona. og þetta hefur farið sigurför í veislum.
Knús!








No comments:
Post a Comment