Thursday, June 26, 2014

Tacokvöld með sojahakki!

Mmmmexican..uppáhalds! Taco, burrito, quesadilla, mexicano- ofnréttir, lasange og jú auðvitað rúllubrauð.
Það er svo auðvelt að elda mexíkanskt og mikið hægt að föndra og prufa sig áfram.

Undanfarið hef ég verið að prufa að nota Hälsans kök vörurnar í allskonar uppskriftir sem vanalega innihalda kjöt, bara svona að breyta til. Sumt heppnast vel, annað ekki.

En bæði ég og kjötætur heimilisins erum ánægð með tacofärs frá
Hälsans kök! (fæst í bónus & hagkaup)

Svo er alltaf hentugt að eiga taco skeljar, hægt að nota grænmeti, afganga, ost og ýmislegt úr ísskápnum í taco eða jafnvel burrito.

Ég byrja á því að skera kál og tómat, gullfallegt.

Á meðan steiki ég þetta klassíska dúó - sveppi og græna papriku.

Hér er svo hakkið, sérstaklega gert fyrir taco! 
Eitt og sér er það frekar boring eins og ekta hakk, en í taco er það mjög gott.
Litli bróðir hélt að þetta væri ekta hakk - Mikael fannst þetta svipað.

Steiki þetta á pönnu með maís baunum þangað til þetta lýtur vel út.
Hægt að krydda líka, mér fannst þess ekki þörf.

Hér er svona lítil taco-stöð þar sem hver fær sér: skeljar, ost, hakk-maís blödu, sveppa-papriku blöndu, grænmeti og ostasósu.
Síðan finnst mér sweet chilli ómissandi með taco!




Knús!



No comments:

Post a Comment