Hér ætla ég að blogga bæði persónuleg blogg og einnig um förðun, MAT, tísku og bara um það sem mér dettur í hug.
Í dag tók ég þá skyndiákvörðun að skella mér í Kolaportið! Oftast tekst mér að finna eitthvað fallegt þar og geri alveg sjúkleg kaup.
Hef þá reglu að taka amk tvo hringi, alltaf finn ég eitthvað sem mér yfirsást úr fyrsta hring. Alltaf!
Síðast fór ég fyrir nokkrum mánuðum og fann þá 4 ónotaða MAC varaliti, allir í sitthvorum básnum. Fékk alla samtals á innan við 1500 kr. Hef ekkert notað þá en ég er ''collector'' þannig að það skiptir ekki öllu.
Í dag fór ég frekar seint og fann ekki margt sem mig langaði í en mér tókst að finna fjóra fallega muni.
- Yndislegan Ásulegan klút á 500 kr.
- Hárband með gylltri keðju á 300 kr.
- Ónotaðan Beige-Pink Kanebo varalit á 100 kr.
- (Næstum því) ónotað halo púður frá Smashbox á 300 kr.
Samtals: 1200 kr. Sem er auðvitað bara snilld..
Hér eru þessar elskur
Og kannski fínt að minnast á að þó að þessir varalitir virki heilir og séu ''ónotaðir'' þá sótthreinsa ég þá vel, you never know, nema auðvitað að þeir séu innsiglaðir..
Knús!


No comments:
Post a Comment